þriðjudagur, 12. febrúar 2013

Tíu stórkostleg fjöll á SV landi

Kistufelli í Esju og er horft til Móskarðshnúka og Skálafells.


Margir eiga sér uppáhaldsfjöll. Ég hef oft verið spurður um uppáhaldsfjöllin mín, uppáhaldstaðina, uppáhaldsgönguleiðirnar og þetta og hitt.

Vissulega eru mörg fjöll og staðir ofar í huga mínum en önnur. Vandinn er bara sá að listinnn eða listarnir breytast svo ört. Þess vegna get ég ekki raðað þeim í röð eftir væntumþykju. Allt er breytingum undirorpið og þá er hugarástandið, félagsskapurinn og jafnvel veðrið sem ræður stemmingu og hrifningu í hverri ferð.

Á Vífilsfelli og horft er í norður yfir Mosfellsheiði og til Esju.
Jæja, ég ætla samt að gera tilraun til að búa til lista yfir fjöll sem ég ann. Ég ætla aðeins að nefna fjöll á SV horni landsins. Síðar mun ég nefna fjöll annars staðar.
Í hömrum Þverfellshorns í Esju, Kistufell í baksýn
Gengið á Móskarðshnúka, athugið að myndin er tekin með 
talsverðum aðdrætti.
  1. Vífilsfell er stórkostlegt fjall og hefur svo margar ólíkar hliðar, móbergsmyndanirnar í kringum efsta hlutann eru hrífandi og svo er útsýnið frábært.
  2. Esja er margbreytilegt fjallabákn. Ég hef ekki tölu á ferðum mínum á Þverfellshorn en þangað er ég nú að mestu hættur að fara. Þar er alltof margt fólk, álag á gönguleiðunum er of mikið og hræðilegt að sjá hvernig hlíðin fyrir neðan hamranna er orðin. Þess í stað fer ég á Kerhólakamb og Kistufell (austurhornið). Hvort tveggja eru stórkoslegir staðir og mun áhugaverðari en Þverfellshorn. 
  3. Móskarðshnúkar eru tengdir Esju órjúfanlegum böndum. Gaman er að ganga upp á Móskarðshnúk, þann austasta. Ekki er síður er áhugaverð leiðin vestur af honum, yfir hina tindana, og síðan út á Esju og þá á Hátind og þar niður.
  4. Hengill er stórt fjall og leynir á sér. Ástæðan fyrir því að ég nefni það hér er hversu margbreytilegt það er. Sérstaklega þykir mér varið í gönguleiðina frá Sleggjubeinaskarði, eftir vesturhlíðunum og á Skeggja. Innstadal tel ég hluta af Hengli. Þar fór maður oft hér áður fyrr, jafnt sumar og vetur, í bað í hveragilinu, eða gekk hringinn í kringum Skarðsmýrarfjall. En það var nú áður en Orkuveitna hóf hryðjuverkastarfsemi  sína.
  5. Keilir er eins og keila, þó ekki fiskurinn. Hann er einstakur í orðsins fyllstu merkingu. Stendur stakur á miðri hraunsléttu, brattur en samt vinsamlegur. Nokkur gangur er að honum en það lengir bara góðan dag og skemmtilega útiveru.
  6. Syðstasúla er hluti af Botnsúlum. Mikið
    Búfellsgjá
    svakalega getur hún stundum verið erfið en þess á milli ótrúlega gefandi. Mér er minnistæð er ég fór einu sinni einn á hana og gekk til baka þá niður hina breiðu suðurhlið hennar. Þetta var stuttu eftir miklar rigningar og mér fannst hlíðin renna með mér niður. Þá varð mér um og ó og hafði það á tilfinningunni að ég hefði skemmt eitthvað. Stórkostlegast við Syðstusúlu er gangan upp eftir mjóum klettavegg alla leiðina á toppinn.
  7. Hvalfell er eitt af þeim fjöllum sem alltof fáir ganga á. Margt veldur, það sýnist ekki hátt þarna við hliðina á Botnsúlum en það er engu að síður 852 m eða svipað eins og að fara á Kerhólakamb í
    Keilir
    Esju sem telst einum metra lægri þar sem heitir Kambshorn. Órjúfanlegur þáttur í göngu á Hvalfell er að skoða Glym og gljúfrið hans.
  8. Stóri-Meitill er við Þrengslin og stutt að fara á hann frá Þrengslavegi. Aðeins lengri ganga er frá Skíðaskálanum í Hverdölum. Ég hef þá trú að afar fáir gangi á Stóra-Meitil, fólk viti bara ekkert um hann. Hann er samt alveg göngunnar virði, þó ekki sé nema til að skoða hinn risastóra gíg sem er í honum og stórfenglegt útsýnið.
  9. Helgafell fyrir ofan Hafnarfjörð er vinalegt fjall og gaman að rölta á í rólegheitum með góðu fólki, spjalla á leiðinni og njóta útiverunnar. Ekki spillir fyrir hið fagra útsýni.
  10. Búrfell, Húsfell, Stóra-Kóngsfell, Bláfjallahryggur, Skálafell á Hellisheiði, Sandfell, Selfjall, Úlfarsfell, Mosfell, Geitafell, Lambafell ... Þetta er svona safnliður. 

Í Hengli, horft í vestur. Fyrir neðan er Engidalur.

Eiginlega gæti ég nefnt tuttugu fjöll, jafnvel fleiri. Einhver kann að segja að þá séu þau uppurin sem eitthvert „slátur“ er í á SV horninu. Nei, því fer nú fjarri, af nógu er að taka. Og ... ég hef aðeins nefnt hér fjallgöngur, ekki göngu á mill staða. Er til dæmis gangan um Búrfellsgjá og á Búrfell fjallganga? Eða ganga í Grindaskörð ...?
Best að hætta hér áður en kappið ber letina ofurliði.